ROLEFINDER Match my CV

Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum

Jbtm

IS - GardabaerPosted 19 h agoDirect from company

  • LocationIS - Gardabaer
  • Work typeOn-site
  • EmploymentFull-time
  • Posted2 November 2026
  • SourceJbtm's careers page (Workday)
  • Last checked1 h ago on Jbtm's careers page
Apply on Jbtm's siteMatch my CVYou apply directly with the employer. RoleFinder never sits in between.

About the role

JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við samsetningu á fjölbreyttum vigtarbúnaði og rafbúnaði.

Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun.

Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi. Framleiðslan í JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.

Starfið felur í sér:

- Samsetningu fjölbreyttum vigtarbúnaði og ýmsum rafbúnaði (t.d. iðntölvur, skynjarar og skjáeiningar)

- Uppsetning á hugbúnaði, stillingar og prófanir ásamt frágangi fyrir útflutning

- Möguleiki á starfsþróun í sérhæfð verkefni eins og samsetningu á röntgenskynjurum og frumsannprófanir á löggildanlegum vogum

Hæfniskröfur:

- Sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun (eða haldbær reynsla í faginu)

- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði

- Góð enskukunnátta í rituðu máli

- Mjög góð tölvufærni og áhugi á tækniþróun

- Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu

- Góð öryggisvitund, samviskusemi og metnaður

- Jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð

- Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hreinn Ingi Örnólfsson, Hreinn.Ornolfsson@jbtmarel.com .

Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.

Is this a fit? Let your CV decide.

Add your CV and RoleFinder scores this role and every new one like it against your experience, with a one-line reason for each.

Match my CV Filter the live feed